Eydís Lillý =)
14.03.2006 22:18:40 / eydis

????????

...........................................................

Kveðjustundir hvað er með þær, þær eru alltaf svo erfiðar sérstaklega þegar maður er skilinn einn eftir. Mér fynnst ég hafa þurft að kveðja allt of marga að undanförnu og vera búa mig undir að kveðja enn fleiri. Ég er svo einmanna þessa dagana hefur aldrei liðið svona, hef aldrei verið svona ein, hef aldrei haft svona lítið fyrir stafni. Mér fynnst öll mín framtíðarplön vera horfin og ég gjörsamlega föst á sama staðnum alveg gjörsamlega pikkföst og sama hvað ég reyni að losa mig þá er eins og ég festist bara miklu meira. Kannski vil ég bara vera svona föst en reyni bara að telja mér trú um að ég vilji losna en í staðinn skorða ég mig meira og reyni eftir bestu getu að koma mér aðeins betur fyrir. Æji þetta er undarlegt ástand og ógjörningur að skilja og því litlar líkur á að einhver skilji mig þegar ég er ekki einu sinni viss um að ég skilji einu sinni sjálfa mig! Já það er ekkert sérstakt að líða svona, vera svona einn og vita ekkert hvert á að fara eða hvort að maður eigi bara að halda kyrru fyrir á sama staðnum. Ætli það sé ekki bara öruggast að halda kyrru fyrir en þá er að vísu hætta á að maður festist í sama farinu og það er nú ekki það sem ég var að hugsa um.

Í táradalnum beið svanurinn svarti

sviðinn af djúpri hryggð,

bitinn af sorg og beiskum tárum

svo fjarri mannanna byggð.

Því skrattanum seldi hann

sína alsíðustu dyggð.

 

 



Dapur beið hann dauðans

og deyja skildi hann einn.

Hann kvæntist köldu myrkrinu

en koss ei fékk hann neinn.

Því hann kunni aldrei að hata

og nú var hann orðinn of seinn.

 

 



Fjaðrir hans tóku að falla

ein og ein þær fuku

þangað sem nóttu ætíð nýtur

og naumast hvað þær ruku

langt á brott og lengra

hvar þær jaðar lífsins struku.

 

 



Mátt þvarr og megin rann

mjúkri skel sig veifði

trú og tilgang fann

sem tómt hjartað deyfði.

 

 



Hvítir svanir héldu honum söng

hvöddu son sinn með láði.

Himininn rigndi rúnum

og rotnu eitri sáði,

dropa með bragði dauðans

Farvel, svarti svanur dáði.

 

 



                                 eipi.

Já en svona er nú bara lífið það er nú ekki alltaf dans rósum og ætti maður nú ekki að kvarta þar sem að maður hefur það mun betra en svo margir aðrir. Ég þakka bara ef að þið hafið nennt að lesa alla færsluna....bless í bili.

                                                    *Dís*


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 00:10:23 / eydis

óheppni,óheppni.

Hætt og ekki hætt, er mikið að gæla við þá hugmynd að hætta þessu bara en samt er það alltaf eitthvað sem að kallar á mann í bloggJ Þó svo að líði nú oft margir dagar á milli þá er ég að pæla í að halda því bara þannig!

 

 



Fyrst að ég er byrjuð verð ég að koma skoðunum mínum á framfæri og það sem að ég er mikið að pæla í akkurat þessa stundina er idolið. Ég er búin að fara í Smáralind öll þrjú skiptin og er það svo sem ekkert frásögufærandi en það sem er að plaga mig er það hvað Bubbi er að pæla?? Hvað er málið með hann?? Er hann ekki búinn að fá það lengi eða hvað?? T.d. í síðasta þætti fannst mér það alveg ótrúleg illska og bara dónaskapur og já skeppnuskapur hvernig hann kom fram við Tinnu. Okey staðreyndin er sú að Tinna er ekki búin að vera að standa sig en samt verið kosin áfram þarna í þessi tvö skipti og Angela og Magga frekar átt að halda áfram frekar en hún og Eiríkur. En málið er bara að ekki er það Tinnu að kenna að þjóðin kaus hana áfram en samt tönnslast dómararnir á því hvað hún eigi ekki að vera þarna og þá er ég aðalega að tala um Bubba. Allavega Tinna datt út á föstudaginn og rétt komst í gegnum lagið sitt í endann og allir stóðu upp í salnum og klöppuðu þar á meðal dómararnir NEMA Bubbi, þvíliík óvirðing hjá honum og fynnst mér bara ekkert skrýtið eftir þessa framkomu að greyið stelpan hafi bara forðað sér af sviðinu og farið bakvið og bara hágrátið sem að hún gerði.!!! Dómararnir eru þarna til að gagnrýna og líka til að benda á góða hluti en Bubbi er bara að njóta þess að niðurlægja fólk í stað þess að segja því þá bara frá göllunum á kurteisan hátt og hvernig sé hægt að bæta sig. Sigga t.d. það er bara eins og manneskjan geti ekki haft sínar skoðanir virðist alltaf þurfa að herma eftir hinum eða þá að segja það nákvæmlega sama og hún segjir alltaf “gangi þér bara ótrúlega vel”.  Æji held að Bubbi og Sigga séu bara frekar þreytt og þyrfti bara held ég að stokka alveg upp í þessari dómnefnd. Ína hinsvega stóð algjörlega gjörsamlega uppúr á föstudagskvöldið en nei Bubba fannst þetta ekki nógu gott og segji ég bara hvað þarf hún að gera til að sanna sig fyrir Bubba??? En samt þarf hún eitthvað að sanna sig fyrir Bubba??  Eru ekki fleiri um það en ég að Bubbi er löngu búinn að ákveða hverjum hann ætlar að halda með og hverjum ekki??? Æji nenniði að segja ykkar skoðun á þessu?

 

 



Allavega það sem að ég er búin að vera að gera undanfarið er það að fara á hausinn með reykjavíkur ferðum en það er nú ekkert peningar sem að ég sé eftir nema hvað það að þessi ferð mín sem ég var að koma úr núna þessa helgina var sko sannalega ekki til fjár. Því það vildi svo skemmtilega til að ég varð fyrir því óláni að síminnn sem ég var að kaupa mér var stolið af mér, mætti reyndar alveg kenna mér pínu um það þar sem að ég var að djamma og og það var fengið sér aðeins neðan í því og kannski bara svoldið mikið, fattaði samt eiginlega strax að ég var búin að týna honum og held að ég hafi skilið hann eftir inni á klósti á ellefunni og fór strax þangað og síminn var ekki þar þannig að ég hringdi í símann minn og þá var búið að slökkva á honum. Þannig að efast um að ég eigi eftir að sjá hann aftur. Vá hvað ég fattaði samt hvað maður er orðinn hændur að símanum sínum ég var bara ekki heil manneskja ekki með síma. Ég huggaði mig samt við það að ég væri nú ekki alveg allslaus þar sem að ég var með kortið mitt og slatta af peningum inn á því. Þannig að á Laugardeginu labba ég niður í bæ og fæ mér að borða á prikinu og syrgði símann minn en huggaði mig við það að ég ætti pening og gæti bara keypt mér nýjan síma. Leiðin lá því upp í kringlu og löbbuðum við Kata bara upp Laugaveginn í leit að einhverji sjoppu til að ég gæti keypt innistæðu í símann hennar kötu til að hringja í Taxa og svo er þarna hraðbanki og ég fer bara í hann og legg inn á Kötu innistæðu og svo förum við bara með Taxa upp í Kringlu og ég enn að hugga mig við það að ég eigi nóg af peningum og lífi mínu því ekki endanlega lokið þegar upp í kringlu er komið þá ætlar mín bara að borga Taxann með kortinu en nei nei þá var bara ekki neitt kort í veskinu mínu og ég hafði gleymt því í hraðbankanum og þá hugsaði ég nú er þetta bara búið síma og peningalaus í Reykjavík á Laugardegi það bara gæti ekki gerst betra! Ég fór að hugsa aðeins til baka frá því að ég var í Hraðbankanum og mér til mikillar skelfingar fattaði ég að ég hafði held ég ekki ýtt á hætta í bankanum og því næsti maður bara geta labbað upp að bankanum og tekið út alla mína peninga ég lokaði kortinu á endanum en ef einhver hefur komið í bankann fljótlega þá erum mínir peningar mjög trúlega farnir sömu leið og síminn minn allavega eitthvert þar sem að ég sé þá aldrei aftur. Þannig að það má segja það að ógæfan hafi elt mig á röndum þessa helgina. Ég vona samt það besta allavega það að þegar ég fer í bankann á morgunn séu mínir peningar enn á sínum stað:)

 

 



Jæja er orðið leiðinlega langt en endilega segjiði ykkar skoðun á þessu með Idolið. Annars kveð ég bara í bili og kannksi maður láti ekki líða alveg svona langan tíma þar til maður bloggar næst, anyway im over and out.........Dís:)


» 17 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 00:47:06 / eydis

.

Jæja lítið hefur verið um skrif undanfarið, og finndist mér nú ekkert skrítið þó að fólk væri alveg hætt að kíkja hérna inn. Málið er bara að finnst mér ekki eins gaman að blogga og áður og er maður farinn að líta meira á þetta sem einhverja kvöl og pínu frekar en gaman og svo er ég bara löngu búin að komast að því að ég er virkilega slæmur penni og lítið sem á daga mína drífur eða allavega ekkert sem er frásögufærandi! T.d. lífið unanfarna daga er nú ekki búið að vera neitt sælulíf, er búin að vera veik með einhverja veirusýkingu. Bólginn á mér hálsinn, tannholdið og tungan.....ummm girnilegt...nei. Þetta hefur haft þau áhrif á mig að ég hef ekki getað borðað neitt nema í fljótandi formi semsagt vökva og satt best að segja er það ekki fyrir minn smekk, helvítis óbjóður. En ég er öll að braggast og er farin að narta í eitthvað sem er ekkki í vökvaformi og er það bara eins og paradís:) Fór samt í einhverjar blóðprufur og helvítis klaufaskapur í lækninum en hann lét mig halda í svona fimm mín að ég væri með hvítblæði, sat bara með kökkinn í hálsinum og fannst eins og lífi mínu væri lokið en þá loksins drullaði hann því út úr sér að búið væri að útiloka að þetta væri hvítblæði, var nefnilega með sömu einkenni! En ég gat andað léttar og ekki með hvítblæði og haldið lífi mínu áfram:) Við Ína erum búnar að vera að gera myndband í kvöld svona víti til varnar þar sem að Ína leikur stelpu illa farna á ofneyslu, hún fattaði nú samt ekki að kannski væri ég illkvittin og myndi leka þessu myndbandi í fjölmiðla þá kæmust þeir sko í feitt:) En ég er ekki illa innrætt! Vorum líka að horfa á idol, áheyrnaprufuna á Akureyri þar sem að ég fékk smá frægð eða það sést smá í mig:) Allavega Erna sést þarna líka og þetta er svo fyrsta skipti sem að ég sé Ernu svo á myndbandi síðan hún fór og VÁÁ ég sakna hennar!

En talandi um veðrið það tala allir um hvað það sé svo ógeðslegt veður úti og ég tek alltaf undir með því en málið er að mér finnst veðrið ekkert svona ógeðslegt, vildi nú samt ekkert hafa svona veður allan ársins hring en það eru einhver notalegheit við svona veður og ákveðin stemming í að þurfa að klæða sig mikið setja upp húfu og fara í vettlinga:) Langar alveg rosalega í þessum töluðu orðum að fara á bretti já eða bara skíði!

Mér finnst svo skrítið að vera ekki í skóla en samt svo mikill léttir eitthvað en samt enn skrítið, maður er búinn að fara í skóla alltaf síðan maður var sex ára. Furðuleg tilfinning.

Jæja segji þetta gott í bili lifið heil:)

 

 



 

 



 

 



 

 



                                    Dísin:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 11:07:33 / eydis

Nei nú liggjum við í því!!!!!!!!

Það er nú gaman að segja frá því að ég held að ég sé fullkomin.......... ég er ein sú dásamlegasta manneskja sem til er og skammast ég mín ekkert fyrir það:) Enn nóg af egó í bili:)...... Það er nú mikið að frétta af mér þessa dagana kella er búin að vera veik og gott ef ekki nær dauða enn lífi:( en á föstudagskvöldið fó ég inn á Akureyri og hitti ég þar eina manneskju sem ég var ekki búin að sjá í nokkrar vikur og var mér vægast sagt mjö brugðið þegar ég sá þessa manneskju því að hún var miklu ógeðslegri enn mig minnti og var ég aðpæla í því allan tíman sem ég var með manneskjuni hvað ég væri eiginlega að spá,,, þoli ekki þegar maður tekur stórar ákvarðanir í lífinu og sér síðan eftir þeim enn þessi persóna er farin frá aftur og er ég eiginlega bara feigin,,,,,,,, en nóg um það enn ég þoli ekki eitt við eina vinkonu mína það er það að hún er alltaf að koma heim til mín og nenni bara ekki að hafa hana yfir mér allan dagin en hún fattarþað bara ekki en vonandi lestu þetta en vertu samt ekki sár því þetta er ekkert illa meint krúttið mitt:-) Já síðan þoli ég ekki hvað sjómenn eru ömurlegir,,ég hef nú ekki góða reynslu af þeim þekkti t.d einn sem hélt að hann væri ægilegur kall bara útaf því að hann hefur dregið nót sem ég held að sé ekkert erfitt síðan talaði hann ekki um annað en einhverja grandara og dauðaleggi eða eitthvað svoleið sem ég hef ekki hugmynd um hvað er og langar ekki að vita. Enn Dís kveður ein og sæl úr sófanaum...............................................

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 22:33:18 / eydis

Ætli það sé ekki kominn tími til......

Kæru landar gleðilegt nýtt ár og long time no see......er bara ekki búin að nenna að blogga og hef í raun ekkert að segja núna en ákvað samt sem áður að henda inn einu bloggi bara svona í tilefni að því að það er ekki langt í það að það sé mánuður síðan ég bloggaði síðast. Ég er búin að eiga mjög góð jól og legst nýja árið bara vel í mig, samt svona fyrir utan það að það eru allir að yfirgefa mig þar sem að ég ákvað að flytja aftur á húsavík og vinna í esso!!! Sé svosem ekkert eftir þeirri ákvörðun var gjörsamlega komin með upp í kok á skóla, en það er samt vonandi ekki langt þangað til að maður sest á skólabekk aftur. Ég er búin að vera að vinna eins og mófó þó svo að launaseðlarnir sýni það nú ekki, en held samt á þessi ári eigi ég loksins eftir að eiga peninga, veit ekki alveg af hverju en hef það samt soldið á tilfinningunni:) Það má alltaf vona! Planið fyrir þetta árið er að fara allavega tvisvar til útlanda já eða allavega að fara til norge að heimsækja Ernu og Eipa! En vitiði hvað ég nenni ekki að skrifa meira sé nebbla rúmið í hyllingum þó svo að klukkan sé aðeins tuttugu mín í ellevu, en svonaq er þetta bara. En er samt að pæla hvort að þið sem að lesið þetta og þá meina ég allir skrifi hæ í komment bara svo ég sjái hverjir koma hingað...okey getiði það takk:)

                          Dís:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 22:00:48 / eydis

gaman gaman!

well well minns og kata erum bara hér heima po laugarbrekkan og erum í þokkalegum fíling...erum að fara á ball erum líka ð bíða eftir að Ína hringi. Ég er búin að vera að vinna eins og motherfucker og því lítið getað bloggað er þokkalega busy manneskaja kannski,,,,ummm ég er að verða fullur;) Þá er gaman að vera saman hey hey hey...vá það var rosalega góð hugmynd að blogga áðan en er bara ekkert svo góð núna þar sem að ég er orðinn full...ekki gott mál þetta....og já btw er að fara á "áfengislaust 16 ára ball" gaman af þvi en anyway love you all og það líður ekki langt þar til ég blogga og þá allsgáð;) Kata er að fara að dansa en nei ég hélt það bara og svo settist hún bara !!! gaman af þessu ég er eitt ruglað stykki;) æji kata er ekki góður dj,,,frekar niðurdrepandi hér en Ína farðu að hringja en ég er farin að reykja bæ......

» 15 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 15:40:21 / eydis

Dont worry be happy.

Draghreðjandi alveg.........já þetta er ljóta ótuktarástandið á þessum bæ, ég er hóstandi í tíma og ótíma eins og berklasjúklingur, horið rennur úr nefinu á mér eins og dettifoss eða eitthvað álíka svo er það hljóðið í eyrunum á mér er ekki viss hvort að ég sé að verða geðveik eða hvort að það sé eitthvað hljóð í eyrunum á mér, ætli tíminn verði ekki bara að leiða það í ljós???  Já það er semsagt flensan sem er að hrjá mig þessa dagana, hefði samt alveg verið til í að fá hana bara í heimsókn einhverntímann seinna þar sem að ég er akkurat í prófum þessa dagana. Og get ég sagt ykkur að það fer alveg með einbeitinguna að vera að reyna að halda í sér hóstanum í miðju prófi til trufla ekki aðra. Það eru vísu ekki allir á sama máli um að þetta sé flensa hjá mér heldur er einn ákveðinn aðili alveg handviss um að þetta sé dauðinn og sé hann farin að banka að dyrum og eru mér gefnir aðeins tíu til fimmtán dagar, og eins og svo oft áður á tíminn eftir að leiða það í ljós!!

 

 



Ég held að labbið niður í bæ og kaffihúsa og bíóferðin í gær hafi gert útslagið, labbaði nefnilega heiman frá mér úr Heiðarlundinum niður á Karó og fékk mér þar kakó sem að var að vísu mestu leyti rjómi en ég skóflaði þessu í mig með bestu lyst. Svo var haldið í átta bíó á Saw 2 eða Salli eins og sumir myndu kalla hana en verð ég að segja að Saw eða Salli hvað sem að þið viljið kalla hana er alveg snilld, labbaði mjög ánægð út úr bíóinu:) En eitt var það sem að olli mér hugarangri var það að það var skítkalt í bíóinu og ekki var ég ein á því máli það voru bara allir að frjósa úr kulda í bíóinu.....ætli maður verði að hafa varann á næst þegar maður fer í bíó að hafa með sér teppi og heitt kakó eða? Ætti ekki að vera hægt að kynda upp bíósalina þar sem að maður er nú að borga áttahundruð kall fyrir að horfa á eina bíómynd....kommon!!!

 

 



Akkurat núna ætti ég að vera að læra fyrir þýsku próf sem að ég er að fara í á morgunn en ég varð fyrir svo miklum vonbrigðum í síðasta þýsku tímanum að er að hugsa um að fara bara í verkfall og falla á prófinu, en þannig var það að Wolli eða Wolfgang sagði þegar að hann var að segja hvað við ættum að læra fyrir próf að þetta væri nú ekki svo strembið þar sem að þetta væri nú allt saman það sem við hefðum lært áður í grunnskóla. Ég varð eins og eitt spurningamerki í framan og alveg HA ég hef aldrei verið í þýsku áður, þá kom í ljós að ég var eina í bekknum sem að hafði aldrei áður læst þýsku semsagt í grunnskóla, mér var skapi næst að hringja í Halldór Valdimarsson skólastjóra í Borgarhólsskóla og halda honum pistilinn, semsagt þarna var komin ástæðan fyrir því að ég hafði alltaf verið lengur að ná þessu öllu í þýskunni í vetur....ÉG VAR EINA SEM HAFÐI ALDREI LÆRT NEINA ÞYSKU!!!!!!!!!!! En já lífið er ekki alltaf dans á rósum.

 

 



Í kvöld er ég að fara i neglur hjá einhverri Kareni sem að ég bara veit ekkert hver er......en sagan segjir að hún sé mjög fær, en ég er drullustressuð yfir því að hún geri þetta ekki eins og ég vil hafa þetta. Ragnheiður verður held ég bara að flytja aftur til Húsavíkur og græja altaf á mig neglur:) Það var samt allt full pantað hjá þessari Kareni en þegar ég sagði henni að ég væri frá Húsavík þá ákvað hún að troða mér inn klukkan hálf tíu í kvöld...sérstakt hélt að maður fengi ekki mikil fríðindi út á það að ver aHúsvíkingur hér á Akureyri!

 

 



Jæja en núna er ég farin að sofa bara og er ætlunin að vakna aftur eftir svona tvo tíma alveg eld hress hvorki með hálsbólgu né nefrennsli né neitt:) Hvernig hljómar það?

Anyway lovjú all........Dísin draghreðjandi:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 19:30:46 / eydis

hey hey hey!

Ákvað að skella inn einu svona efast samt stórlega um að einhver eigi eftir að svara þessu en ég vona og ef að þið þekkið mig ekki neitt þá bara kommenta eitthvað;)

1. Þú segir mér eitthvað handahófskennt um mig

2. Þú segir mér hvaða lag minnir þig á mig

3. Þú segir mér hvaða bragð minnir þig á mig

4. Þú segir mér eitthvað sem meikar bara sens fyrir þig og mig

5. Þú segir mér fyrstu ljósu minninguna þína af mér

6. Þú segjir mér á hvaða dýr ég minni þig

7.Þú spyrð mig að einhverju sem þú hefur velt lengi fyrir þér um mig

8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 11:45:16 / eydis

eniga meniga.

UNDUR OG STÓRMERKI gerðust Mánudagskvöldið 28. nóvember já eða í gær, að Eydís Lillý Egilsdóttir fór í SUND.......já það er rétt ég fór í sund og það var orðið svo langt síðan að ég fór síðast í sund að ég man ekki einu sinni hvenær það var!! Málið er bara að sundlaugar hafa ekki heillað mig neitt rosalega og því hef ég bara sleppt því að fara í sund, sundferðin byrjaði bara ekkert sérlega vel því að það er eins og það sé bara einhver agaleg þjófavörn í þessu skápum í sundlauginni, allavega of flókið fyrir mig og þar sem að ég var bara að fara í sund með strákum þá var enginn þarna mér til halds og trausts en ég reddaði þessu á endanum með mínum ofurgáfum:P Svo var haldið út í pott og strákarnir (Sveinbjörn, Ásþór, Þór, Bjarki og Böðvar.) auðvitað löngu komnir oní.....Og svo gekk allt bara eins og í sögu, farið var í gufu og svo í barnapottinn og þábyrjuðu strákarnir eitthvað að hvíslast. Eydís var skörp og fattaði að eitthvað væri í gangi og forðaði sér í inni pottinn en svo þegar strákarnir voru búnir að sverja fyrir það að þeir væru ekki að fara að gera neitt við mig treysti ég mér aftur oní barnapottinn til þeirra og alltí lagi bara með það og svo segjir Þór mér að koma því hann ætli að hvísla einhverju að mér og ég fell auðvita fyrir því og þá koma þeir allir og taka mig upp á höndum og fótum og henda mér útí ískalda sudlaugina,,,helvítis melirnir. Ég var nú bara alls ekki sátt með þetta hjá strákunum og hljóp uppúr en áhvað nú að fara aftur út og segja strákunum að þeir ættu að bíða eftir mér frammi ef að þeir yrðu á undan sem að væri mjög líklegt:) En þá koma Sveinbjörn og Þór og taka svona í hendurnar og fæturnar á mér og ég eiginlega get ekki lýst þessu en ég var allavega nær dauða en lífi og hættu þeir loks þegar ég var farin að gefa frá mér undarleg hljóð! Helvítis hálvitarnir skulu fá þetta borgað!!! Og ekki nóg með þaðen að Sveinbjörn spilaði ljótan leik fyrir utan þetta í sundlauginni....það var nefnilega þannig að ég, Sveinbjörn og Bjarki ákváðum að fara í ljós og fáum bílinn hjá Bjarna lánaðan til að fara niður í stjörnusól, þegar við erum byrjuð að skafa af bílnu þá fatta bæði Sveinbjörn og Bjarki að þei séu ekki með stuttbuxur þar sem að við ætluðum að fara í pottinn eftir ljós. Þannig að Bjarki er sendur inn að sækja tvennar stuttbuxur semsagt handa sér og Sveinbirni og þetta virtist ætla að flækjast alveg voðalega fyrir honum allavega tók þetta óra tíma en hann kemur loks á endanum með tvennar stuttbuxur. Og við getum loks lagt af stað niður í Stjörnu sól en þegar þangað er komið þá fara Bjarki og Sveinbjörn að rífast um hver eigi að vera í hvaða stuttbuxum og ekki bara rífast heldur fór Sveinbjörn að hlaupa á eftir Bjarka fyrir utan stjörnu sól og reynir að ná af honum stuttbuxunum. Ég stóð einn inni í stjörnu sól ein og einhver mófó og loks þegar þeir drulluðust inn þá var ekkert laust:( Þannig að við fórum út í bíl en þá var víst það nýjasta að Bjarki átti að labba upp á vist......þegar þangað var komið þá var Eydís orðin svolítið pirruð og sagði því Bjarka að drullast inn í bíl og Sveinbirni að andskotast til að keyra af stað, það fór víst eitthvað fyrir brjóstið á Sveinbirni og hann harðneitaði að að keyra á stað fyrr en að Bjarki væri farinn út úr bílnum, Þá sögðumst við bara ætla að bíða í bílnum. Þá ákvað Sveinbjörn bara að labba upp á vist og skilja bílinn hann Bjarna eftir niðri hjá Stjörnu sól og við Bjarki bara já Sveinbjörn minn gerðu það bara, alveg handviss um að hann myndi ekkert láta verða af því. En nei kallinn labbar út úr bílnum og hverfur barea fyrir næsta horn þannig að við Bjarki ákváðum að fara bara út í sígó.....en nei eftir svona tvær mínútur kemur Sveinbjörn bara á harðaspretti og já bæ the vei hann datt og náði svo svo að drulla sér inn í bíl og keyrði upp á vist og kom aldrei aftur, semsagt skildi okkur Bjarka þarna eftir í nístingskulda og við sáum ekkert annað í stöðunni en að við þyrftum að labba heim og ég get sagt ykkur það að Sveinbjörn fékk sko að finna fyrir því þegar ég hitti hann:)
En núna verð ég að far að byrja á ritgerð sem að ég á að skila á morgunn og já bara svo þið vitið það þá er enginn skóli hjá mér í dag og einnt tími á morgunn og svo er það bara Húsavík, vinna og læra og svo tvö próf 6 og 8 des svo er það vinnaog svo bara jól og áramót.....jeeeeeehhhhhhhh:P

Bless í bili!!!!
                                Dísin í dúndurstuði.....


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 22:31:43 / eydis

Pirrípú.

Hafiði lent í því að vera alveg óskaplega pirruð og leið en vita í raun ekkert af hverju?? Þannig er mér búið að líða í dag, það er allt eitthvað rosalega erfitt og ég pirrast bara útaf hlutum sem aldrei áður hafa pirrað mig. Ég skil ekki þessa daga sem að þetta kemur fyrir maður er bara alveg ónýtur og langar bara helst að liggja undir sæng og aldrei fara þaðan aftur!! Svo vorkennir maður fólkinu í kringum sig því að ef að maður heldur sig ekki bara undir sæng eða einhvers staðar einn þá lætur maður pirringinn í sjálfum sér bitna á öðrum.....ekki gott mál þetta....bara þoli ekki svona daga:evil: Ég vaknaði samt í morgunn og fyrsta sem að ég hugsaði var að ég ætla ekki í skóla eftir áramót, þannig að þá er það ákveðið að ég fer ekki í skóla eftir áramót. Er samt búin að vera að pæla eftir því sem að leið á daginn að kannski hefði akkurat þessi dagur ekki verið sá besti til að ákveða hvað ég geri eftir áramót af því að eins og ég skrifaði hérna fyrir ofan þá var þetta bara ekki besti dagur sem að ég hef upplifað. En þar sem að þetta var það fyrsta sem að ég hugsaði þegar ég vaknaði þá hlýtur þetta að vera rétt ákvörðun!! Þó svo að ég ætli ekki í skóla eftir áramót þá er ég samt ekki að segja að ég ætli aftur til Húsavíkur,,,bara langar það ekki alveg strax. Stefnan er sú að fá sér vinnu hér inn á Akureyri og helst leigja og helst með Ínu, en þetta á auðvitað allt eftir að koma í ljós og finnst það nú alveg trúlegt að maður eigi bara eftir að enda á gömlu vík. Þó svo að draumurinn sé að fara bara eitthvað út bara ekki seinna en strax þá held ég samt að ég verði aðeins að byrja að sjá betur um mig sjálf hér á landi áður en ég fer að flýja land. Svo er mikil löngun fyrir því að fara með nord-jobb næsta sumar, sem að yrði auðvitað bara gaman en þar sem að ég er frekar dýr í rekstri þá held ég að ég verði að vera í einhverri vinnu og fá fullt af pening svo að ég geti nú eytt honum bara alveg um leið eins og ég geri alltaf....nei reyndar er stefnan tekin á það að læra að fara með peninga!!!!!! þetta bara gengur ekki lengur það er bara eins og þegar peningar komast í mínar hendur þá er bara eins og þeir gufi upp......bara skil það ekki!! Langar bara svo að leigja mér íbúð og fara í bónus og kaupa inn fyrir heimilið, veit ekki af hverju að mér finnst það spennandi. Svona er maður skrýtinn. Vá já og fara svo og kaupa það sem að þarf í íbúðina þegar maður er að flytja og innrétta allt eins og maður vill og agalega kósý.......ohhhhh ég er svo pottþétt að fara að leigja mér íbúð:) Verð að gera það svo að sálarástand mitt verði samt aftur!!!

En já helgin er að segja sitt síðasta, þetta var bara fínasta helgi svosem, ég eiginlega nenni ekki að segja frá henni nema að ég ætla að segja það að ég, Ína og Erna skutluðum Didda inn á Akureyri á Laugardagskvöldið og svo keyrðum við á bensínljósinu alla leið heim frá Ak og Erna var gjörsamlega að missa sig og já reyndar ég og Ína líka en Erna var verst því að við vorum svo vissar um að við yrðum akkurat bensínlausar í hrauninu og það vildum við nú ekki,,,,,við Ína reyndum nú að gera gott úr þessu og sögðum nokkrar draugasögur og ég hélt að Erna myndi bara missa sig hún hélt fyrir annað eyrað þar sem að hún var að keyr og gat ekki haldið fyrir bæði og svo að hún myndi ekki heyra í okkur öskraði hún eins brjálæðingur, það var meira að segja nóg að segja Land Rover og þá varð allt brjálað. Æji þetta er kannski meira svo hed tú bí þer fynndni en rosalega fynndið samt sem áður......anyway er komin með verk í mjóbakið eins og Erna og er því hætt í bili.....


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 14:48:07 / eydis

Kitli kitli kitl....

Katrín Þóra dóttir Þorsteins og Guðrúnar og kærasta Árna kitlaði mig og verð ég víst að gera það láta kitla mig eins og hvern annan aumingja en verst  er að mér kitlar ekki:)

 

Hlutir sem að ég ætla að gera áður en ég dey:

 

    1.   Fara í teygjustökk og fallhlífastökk.

 

    2.   Ferðast um allan heiminn og ég verð að fara til Mexíkó.

   

    3.   Borða sushi.

    

    4.   Hitta einhvern heimsfrægan.

    

    5.   Finna upp geðveika uppfinningu og græða böns af peningum á því.

 

Hlutir sem ég get ekki gert:

 

  1. Get ekki dansað ein, sú taktlausasta í bransanum.
  2. Snýtt mér og hef aldrei getað og ætla mér ekki að læra.
  3. Get ekki ropað hátt, en langar að geta það.
  4. Sleppt því að borða samloku með kogga:)
  5. Beðið með það sem ég ákveð og svona eins og það er kallað að sofa á því, það verður allt að gerast strax!

 

Hlutir sem ég get gert:

 

  1. Sofið eða legið og horft á sjónvarp heilu dagana.
  2. Borðað samloku með kokteilsósu í hvert mál.
  3. Eytt mikið af peningum á stuttum tíma og oft í eitthvað sem að mig vantaði bara ekki neitt.
  4. Lesið heilu blaðsíðurnar án þess að hafa nokkra hugmynd hvað ég var að lesa.
  5. Þótt endanlega vænt um vini mína:)

 

 

Hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

 

  1. Hendur.
  2. Hár.
  3. Persónuleiki
  4. Andlitslag.
  5. Og bodyið.

 

 

Frægir menn sem heilla mig:

 

  1. Jhonny Depp.
  2. Brad Pitt.
  3. Brian Molko.
  4. Billy Corgan.
  5. Gael García Bernal

 

 

Orð sem ég segi oft:

 

  1. Skiluru.
  2. Geðveikt.
  3. Ógeðslega.
  4. Beiler.
  5. Really.

 

Hlutir sem ég sé akkurat núna:

 

  1. Egils Malt og Appelsín.
  2. Stundaskrá.
  3. Síma.
  4. Tölvu.
  5. Geisladiskamöppu

 

 

Fólk sem að ég ætla að kitla eru:

 

  1. Erna Jóna.
  2. Nettar.
  3. Katrín Kristjáns.

Jæja þá er það búið ætla skella hérna inn einni mjög glaðlegri af mér...:)

 

 

 Eydís Hlæjandi



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 18:34:48 / eydis

Ladies first nei Eydís first:)

 

 



 

 



Vell vell vell.....long time no see, ég er alveg obboslega löt þessa dagana nenni varla að hafa mig á fætur til að fara í einn tíma og það eftir hádegi. Þannig að varla nenni ég að blogga..........er í smá vandræðum hérna gæti verið að einhver eigi ævisögu Gunnars í Smára eða hafi tekið upp heimildarmyndina um hann sem var sýnd á RÚV 6. febrúar 2005???? Mér bráðvantar þetta!!!!! En nóg um það, ég er búin að gera ýmislegt undarfarna viku og t.d. í gær fór ég í bíó á Exorcism og Emily Rose og ágætis mynd, fékk mann alveg til að hrökkva við stundum....en mér fannst ekki nógu mikið sýnt frá sjálfri særingunni, æji það er auðvitað bara smekksatriði.....ég elska góðar hryllingsmyndir og er langt síðan að ég sá góða hryllingsmynd en þessi komst mjög nálægt því:) Ég verð samt að segja það að strákarnir sem að ég fór með nefni engin nöfn en ég hélt gjörsamlega að þeir myndu annaðhvort væta sætið eða hlaupa vælandi heim:) Algjörir aumingjar!!!! En jæja samt sem áður það sem ég er búin að bralla svona í grófum dráttum síðan síðast er trúlega þetta:

 

 



Á mánudagskvöld kíktum við Ragga frænka á djammið með gaurunum í Írafár já og Birgittu, má ekki gleyma henni......við erum svo miklar grúppíur frænkur:) En allavega þá hef ég bara aldrei drukkið eins mikið og sérstaklega ekki á mánudagskvöldi en það besta við þetta var að þetta var frítt bús, alltaf gaman af svoleiðis:) Þriðjudagur fór bara mestur í þynnku og ógeð, mætti meirað segja ekkert í skólann já eða þennan eina tíma!!! Svo svona eftir kvöldmat fór ég að græja mig og haldið var niður á Vist og horft var á heimildamyndina Skuggabörn og hún fær mann nú aðeins til að hugsa!! Svo var farið í vídjó í herbergi 5219 og þegar farið var að líða á kvöldið nennti ég ekki að labba heim og kúrði bara hjá honum Sveinbirni mínum og drattaðist svo heim um morguninn og fór svo í skólann um hádegi........Það var aftur gist næstu nótt á herbergi 5219 en það var vegna þess að ég átti að mæta í skólann klukkan tíu en Sveinbjörn átta og ég vissi að ég myndi ekkert vakna í skólann klukkan tíu og varð ég að mæta enda næst síðasti dösnkutíminn. Þannig að Sveinbjörn rak mig á fætur klukkan átta og þá labbaði ég heim og fór í sturtu og svona og var bara eiturhress og hvarlaði ekki að mér að svikjast eitthvað og leggjast aftur upp í rúm. Þannig að minns mætti í skólann klukkan tíu:) En þegar þarna er komið þá er komin helgi já eða fimmtudagur........um kvöldið var startað heima hjá Arnóri, þatr var nokkuð að fólki og svo var það bara Oddvitinn og þar var gaman að venju, ég kíkti reyndar aðeins á Dátann en þar var ekkert gaman þannig að ég fór aftur á Oddvitann. Eftir lokun á Oddvitanum fór ég í eitthvap Partý með Diddda og Begga og við skulum bara segja það að það var það skemmtilegt að ég ákvað að drepast bara sem fyrst í einhverju rúmi þarna. Diddi og Beggi komu og vöktu mig eftir smá og við fórum heim!!! Þá er kominn föstudagur ohg ég mætti í dönsku 13:15 og svo var farið að huga að heimferð, Ína var eitthvað búin að tala um það að ná í mig en Peddi þurfti víst eitthvað að nota bílinn kannski flytja rusl eða eitthvað:) (Ína auga fyrir auga tönn fyrir tönn) !!! Þannig að ég missti af rútunni og var bara búin að sætt amig við það að ég yrði inna á Akureyri þessa helgina en þá ringdi inn svona símtölunum um far til Húsavíkur og ég fór heim með Dedda bróðir pabba. Þegar til Húsavíkur var komið var dubbað sig upp og farið í poppmessu og var það bara þokkalega gaman,,,,aðrir að fíla sig meira en aðrið:) Eftir poppmessu var farið á rúntinn fyrst með Ernu og Ínu, svo fór Erna að vinna þá fórum við Ína á rúntinn á kagganum hennar já eða Pedda og Baldur og Arnar komu með í smá stund og svo var bara haldið í háttinn! Ég mætti hress í vinnu klukkan ellefu en það má segja það að það voru ekki alllir hressir og lítið búnir að sofa og vel þunnir:) Harpa Ásgeirs var eiginlega bara inn á grilli allan daginn, ætli hún hafi verið að fela sig fyrir einhverjum? :) En um kvöldið ákváðum við Erna skyndilega að fá okkur svona í aðra tána en hjá Ernu þá var það meira svona í alla löppina og vorum við á pakkhúsinu og var fólk út á Tjörnesi að kvarta undan hávaða í henni:) Það var einhver Lauga gaur sem að var eitthvað pirraður við einhverja stelpu þarna og dúndraði svona í borðið og stóri bjórinn sem var fullur og Gummi sterki var búinn að splæsa á mig sullaðist yfir mig alla og ég þurfti að fara heim að skipta um föt:( En annars var þetta bara snilldar helgi í heild sinni og auðvitað sleppti maður því ekki að fá sér þynnku máltíð í Esso á Sunnudeginum og svo var bara haldið heim um hálf níu heim til Akureyrar og þegar þangað var komið fór ég í vídjó með Arnóri og Írisi já og svo var ég búin að segja að ég fór í bíó í gær og þá er bara kominn dagurinn í dag og ég er ekki búin að gera neitt í dag bara búin að hanga uppi í rúmi og það er ætlunin að gera bara ekkert mikið meira en það:) En þetta ætti að vera komið gott lifið heil og sæl.....

                                                             Eydís Lillý:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 15:56:25 / eydis

jú nó vat æ mín:)

Já helgin er afstaðin eins og svo oft áður, það vill alveg rosalega oft til að maður bloggar á mánudegi og segjir frá viðburðum helgarinnar....það er eins og það gerist aldrei neitt nema um helgar hjá manni:) En allavega ég ætlaði mér ekki að fara til Húsavíkur en það víst alltaf eitthvað sem að kallar á mann þaðan og því ákvað ég að fara bara á hótel mömmu og það er alltaf jafn næs:) Manni er færður maturinn og það er breytt yfir mann á kvöldin og sungið vögguvísur.....já nei kannski ekki alveg en svona næstum því, það er allavega ekki hægt að segja að mamma láti mann afskiptalausan þegar maður kemur heim. Held að mamma sé virkilega farin að sakna þess að hafa heimasætuna ekki hjá sér og já þá kannski ekki alveg hægt að kalla mig heimasætu:) En allavega ég tók það bara rólega á föstudagskvöldið enda vel þunn og ógeðsleg síðan kvöldið áður, var bara heima og hékk undir sæng og horfði á Tvið, lang síðan ég hef eitt föstudagskvöldi á þann háttinn!!! Það var dormað bara fram eftir á Laugardaginn og svo kom Ína beib frá borgiinni og kíkti í heimsókn en það var nú ekki langt stopp hjá kellunni því hún var að fara á Írafár tónleika, sú gamla lætur sig ekki vanta þar:)  Á meðan Ína var að tralla og syngja með Birgittu þá nýtti ég bara tímann og fór í sturtu og græjaði mig...eftir að Ína var búin á tónleikum þá tók krúsið bara við og Hildur kella kom svo með okkur, eins og allir vita þá er Hildur þekkt fyrir mikla drykkju og spillti því hjá mér að ég ætlaði bara að vera án drykkju þetta kvöldið, þannig að farið var í að redda sér bjór og þið vitið nú hvaða áhrif það hefur á mann en allavega ég var orðin nokkuð góð og þá var farið á Bauksa og þar var hljómsveitin Von að spila...sökum ungs aldurs var bara staðið í dyrunum því eins og þið vitið þá var Steini kallinn að redda þessu:) Olli var í svaka stuðið eins og endra nær og hrósaði mér í hástert og sagði að ég væri besta systir hans og ætla ég nú rétt að vona það þar sem ég er líka eina systir hans! Eftir margar misheppnaðar tilraunir Olla til að koma mér á fast já eiginlega bara með næsta manni og þegar baukurinn var að loka þá var farið að grúppíast aðeins og farið upp í Írafárs rútu að djamma alveg rosalega....allavega flestir nema að Vignir var bara meira svona í skyr.is drykknum:) Ási Presley var víst með alveg þrusu partý já eða ekki! En allavega ég get sagt ykkur það að ég svaf í mesta lagi svona klukkutíma þessa nótt en það var bætt upp þarna í kringum kvöldmatinn og eins og örugglega flestir vita að þegar maður er búinn að sofa alveg rosalega lítið og leggur sig svo ó svona tvo tíma þá er alveg rosalega erfitt að vakna og þegar maður vaknar þá heldur maður bara að maður muni aldrei koma til með að geta gert neitt aftur en eftir svona hálftíma dorm þá er maður orðinn hress og kátur aftur:) Ég tók þá ákvörðun þarna á Sunnudeginum að vera bara ekkert að fara heim til Akureyrar aftur og fara að skreyta í Esso með liðinu (frír bjór) og var það eitthvað sem að ég hefði ekki viljað missa af.....Ína fór alveg á kostum og er ég bara hissa á að Magga hafi ekki ælt vegna Ínu en ætla ekkert að fara nánar úti það nema ég skal bara segja ritskex og vínber:) Ummmm það var kannski aðeins þuklað á Erlu en nefni nú engin nöfn þar nema að sú manneskja var ekki ein af Esso krúinu:) Ína og Júlía kláruðu nú samt allan bjórinn eða svona nokkurn veginn eða það varð allavega til þess að það var bara einn á mann handa okkur hinum!! Ég komst í þokkalega jólafíling því að það var blasta jólalögin já eða ekki blastað:) Nokkrar okkar vorum nú samt svoldið mikið í pásu en ég meina eins og Ína segjir það er ekkert gaman að hengja upp jólaskraut (hún hefur þurft í mörg ár að hengja upp jólaseríur í gluggann sinn og var ekki sátt með það að þyrfti alltaf að vera kassi:) Ína gerði samt heldi ég eina fallegustu jólaskreytingu sem að ég hef séð og svo ég tali nú ekki um staðinn sem að hún hengdi hann á:) Já allavega þetta var allavega snilld og í fyrsta sinn í langan tíma Esso partýa sem að bjórinn hefur klárast....ætli það sé útaf því að Ína er byrjuð að vinna í Esso?????? Það er nefnilega spurningin!!  En haldið var heim á leið eitthvað um eittleytið eftir velheppnað kvöld:) Í morgunn var svo farið til Akureyrar með henni Lilju Skarp og hún hafði sko ekki lítið að segja manni:) Svo var bara farið heim í Heiðalundinn og sturtað sig og tók alvaran við já eða skólinn og ég fór í Þýsku og átti svo að fara í Sögu en Þröstur félagi var veikur....spurning hvort að hann sé bara þunnur eftir helgina:) En allavega þá eru atburðir þessarar helgar svona flestir upptaldir...já svona það sem að hæfir því að fara inn á svona veraldarvef! :-) Jæja best að fara að dröllast til að gera eitthvað gáfulegt,,,,,Eydís yfir og út að sinni:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 13:50:44 / eydis

brenglað.....

Váá hvað þetta blogg mitt verður leiðinlegt, samt sem áður ætla ég að blogga ég er svo reið við sjálfa mig og er gjörsamlega búin að klúðra öllu. Það er eins og ég sé haldin einhverri sjálfseyðingarhvöt sem að birtist í sinni verstu mynd svona þegar allt er að ganga manni í haginn. Þegar allt lýtur svona ágætlega út hjá manni þá tekst mér að gera einhvern skandal og klúðra öllu fyrir mér....og það bara bregst ekki að ég geri þetta og ég get sagt ykkur það að ekki læri ég af mistökunum, það er nokkuð víst. Ég held samt að það sé ein nokkuð góð leið í að hindra að þetta komi alltaf fyrir aftur og aftur er að ég verð held ég að hætta að drekka því oftar en ekki geri ég eitthvað af mér þegar ég er drukkin því að ég t.d. kann ég mér ekki hóf og fer alltaf yfir strikið í drykkju og oftar en ekki endar það illa!!!!

                     >>>>>>> Eydís og áfengi fara ekki saman<<<<<<<<

Lausnin er kannski ekki alveg svona einföld en þetta er byrjun........... Jæja ætti maður að fara að slá á léttari strengi eða??? Okey gærkvöldið var mjög fínt svona þegar á heildina er litið en hefði kannski mátt enda öðruvísi. En allavega hist var heima hjá Arnóri og sötrað smá svo lá leiðin á Oddvitann vel stappað af fólki og mikil stemming,,,og skal segja ykkur það að sú gamla á barnum poppaði handa okkur í gær, ég meina hvaða bareigandi myndi gera þetta...enginn nema hún:) Sú gamla sagðist nú þurfa að gefa okkur eitthvað í svanginn:haha: Áætlunin eftir Oddvita var að fara í einhvern sumarbústað en einhverra hluta vegna var ekki farið þangað... æji nenni ekki að segja meira frá þessu kvöldi!!! En hey gleymdi að segja að minns fékk bara þessa flottu rós í vasa og alles heimsenda í gær og agalega sætt kort en það stendur ekkert frá hverjum þannig að maður spyr sig hver sé svona sætur í sér....humm:) Ína Valgerður er ein sú illkvittnasta í bransanum í dag, okey hérna kemur orðrétt sms sem að hún sendi mér: "Hæ hæ ætlaði bara að láta þig vita að ég er á spítalanum á akureyri! Fór í aðgerð í nótt er eitthvað nýrnaveik, það var bara að koma upp núna! Það varð bráðaútkall kl: 12 í nótt, ég missti allan mátt í líkamanum og gat ekki andað og ekki neitt. En ég er miklu skárri í dag! Fór sko í 3 tíma aðgerð í nótt. Á eftir að fá ýtarlegri niðurstöður, en þetta er mjög alvarlegt og langvarandi:( Ég hringi í þig á eftir!" Við lestur á þessu sms byrjaði ég öll að skjálfa og ósjálfrátt byrjuðu tár að renna niður vanga minn. Erna er reyndar ekki alveg saklaus heldur því að ég var á msn og um leið og ég fæ sms frá Ínu spyr ég Ernu á msn bara plís segðu mér að þetta sé ekki satt með Ínu? Erna kellingin spilaði með, hefði samt kannski átt að fatta að þetta væri ekki satt þar sem að Erna var svo róleg. Ég gleypti við þessu öllu og´segji meirað segja við Ernu á msn okey þá verð ég að drífa mig út á spítala og Erna bara já viltu knúsa hana fyrir mig. Og ég fer út af msn og var að fara að klæða mig og hlaupa út á spítala....þá hringir Ína svona skellihlæjandi í mig og sagði að þetta væri bara bull, það kom að vísu upp smá saviskubit hjá henni þegar hún heyrði að ég var grátandi alveg í sjokki...En samt þá var þetta leiðin hjá Ínu til að segja mér að koma til Húsavíkur því að hún væri ekki að fara suður....haldiði að það sé sjúkt!!!! Sjúkara gerist það held ég ekki.

Hvort ætti ég að fara á Hlíðarbæjarball eða fara til Húsavíkur??? Hlíðarbæjarball eða Húsavík það er spurningin??

En þetta kemru allt í ljós vonandi en Eydís kveður að sinni!!!

                                                     Bæjó:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 00:33:03 / eydis

hú em æ????

 

Hér með ákveð ég að skella inn eins og einu bloggi þó svo að ég sé nýbúin að blogga og eitthvað mjög lítið hefur á daga mína drifið síðan í gær.......Já í dag þá fór ég bara ekkert í skólann því ég svaf yfir mig í þennan eina tíma sem að ég átti að mæta í og já hann var klukkan 13:15 takk fyrir....vandamálið er bara að ég get ekki sofið á nóttunni fynnst það bara allt of mikilvægur tími til að eyða honum í svefn:)  Í dag var farið á búðarráp þó svo að það væri vitað mál að það væri ekkert verið að fara að kaupa neitt eða það héllt maður en nei Bjarki kallinn skelltir sér á úlpu/jakka fyrir hvorki meira né minna en 22 þú kall. Eftir búðarrápið þar sem að bæ the vei hitti ég bæði Ingvar og Hildi alveg klifjuð af vörum úr helstu tískubúðunum....já þau voru ekki saman samt sem áður í verslunarferð heldur var Ingvar með kærustunni og systur hennar en Hildur með litla bróður:) Já eftir vbúðarráp þá var farið upp á vist og pantað sér pizzu og rifist mikið um ýmis málefni og Þór og Sveinbjörn eru mestu hálvitar ef að þetta eru þeirra skoðanir og ykkur myndi finnast það líka ef að þið vissuð hvað þeir voru að segja, allavega málið snérist um samkynhneigð æji allavega ég er alls ekki á sömu skoðun og þessir melir!!!!!! Pizzan reyndist samt sem áður hin besta þrátt fyrir það að mér tókst að sulla vel niður á mig og aðra:)  Já eydís alltaf sama sullukollan! Eftir mat fórum við í átta bíó á Two for the Money...sem var einmitt fyrirsögnin á blogginu mínu í gær og ég vissi ekkert af hverju ég áhvað að hafa hana og svo fór ég bara á hana í bíó áðan og vissi samt ekki  í gær að það væri verið að sýna mynd sem heitir tú for the moní,,, svona er þetta skrítið:) Eftir bíó ætlað ég upp á vist en þá hringdi Andri Freyr í mig og bað mig að koma á rúntinn með sér og einhverjum Baldvini held ég að hann heiti...og Baldvin ef að hann heitir það kenndi mér einnmitt góð trix ef að ég fer að taka bílprófið hér á akureyri sem hafa orðið mörgum að falli að vita ekki og ég kann þetta þá allt saman þegar kemur að þessu:) Ef að það kemur að þessu einhvern tímann, hey ég er einmitt að fara að hitta Hemma ökukennara á morgunn, þetta er allt að koma hjá mér:) Já bæ the vei Two for the Money er bara ágætis afþreying!!! Bara svo þið vitið...Dóri sagði mér nefnilega að hann hefði farið á hana, reyndar fullur og sofnað svo leiðinleg hefði hún verið en ég tók ekki mark á honum og fór á hana og fannst hún bara ágæt....en já hvað segir það ykkur þá þið ættuð náttúrulega ekkert að taka mark á mér frekar er það nokkuð???? Nei held ekki......Anyway er komin heim núna og er meirað segja að pæla í að skella hérna inn einni alls ekki feskri mynd af mér að skrifa þetta blogg........mjög djúpt hugsi því þetta er svo rosalega djúpt allt saman sem ég er að skrifa:) 

 

eydis

Jæja er hætt núna veriði sæl...en hey veit einhver hvort hægt sé að setja svoan mynbönd inná bloggið?

bbbbbbbbbæææææææææææææ


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7